Boogie...
Leitarbox

20.06.2007 21:28:29 / Bogga

Vill einhver fréttir ???

Jæja pípól ! Hvað syngur ? Er þetta ekki bara komið gott af bloggpásu í bili ?

Það sem er helst að frétta af mér er að um daginn fór ég með Kór Langholtskirkju til Vínar í nokkra daga.  Það var alveg ótrúlega gaman :D Við vorum fyrst í Vín og fórum svo til Sonntagberg sem er hóll/fjall með einni kirkju og hótel.  Við sungum eina tónleika í þeirri kirkju, eina messu, eina tónleika í einhverjum öðrum sal og svo eina tónleika í Vín.  Við fórum sem sagt aftur til Vínar síðustu 2 dagana.  Hann Anton Steingruber, kórstjórinn sem tók á móti okkur var búinn að skipuleggja liggur við hverja einustu mínútu af ferðinni fyrir okkur svo það var alveg nóg að gera.  Við skoðuðum alveg nóg af kirkjum, klaustrum og söfnum.  Mas einu sinni fórum við klukkan 9 eða 10 um morgunn á eitthvað safn og þar tók á móti okkur Borgarstjórinn og ljósmyndarar og við fengum kampavín, hvítvín og rauðvín....klukkan 10 um morguninn !!! :S Við auðvitað kunnum nú ekki við að segja nei takk, en höfðum heldur ALLS ekki lyst á áfengi, svo við helltum því svo að lítið bæri á :P  Maður náði nú ekki að skoða mikið af Vín en svona smá.  Svo fórum við nokkur í Vínaróperuna, á Don Carlos eftir Verdi.  Það var alveg ótrúlega skemmtilegt að koma þangað, og óperan var mjög flott, soldið löng reyndar, ekki nema 4 og hálfur tími ;)  Við vorum mas að spá í að fara á Othello líka seinna kvöldið.  Það hefði verið mjög fyndið, að vera í 2 daga í Vín og fara á 2 óperur ;)  Eitt sem ég á ekki eftir að borða næstu árin er Vínarsnitsel...vá við borðuðum það örugglega á hverjum degi ! :S Hótelið okkar sem við gistum á á Sonntagberg var æðislegt ! Það var eins og gamalt klaustur, stór dökk húsgögn og útsýnið var geggjað ! Manni leið eins og Heidi ;)  Við flugum til London og svo frá London og heim.  Við náðum að vera heilan dag í London.  Við nenntum nú samt ekki að skoða neitt mikið, sigldum niður Thames, löbbuðum framhjá Tower bridge og Big Ben, og svo fórum við Andri bara á Oxford street, hann verslaði smá og svo sátum við heillengi bara að horfa á fólkið J  Svo flugum við heim, alveg ótrúlega þreytt :P  Þetta var nú í einu orði sagt alveg æðislega ferð og auðvitað æðislegir ferðafélagar ;)

 Ég er byrjuð að vinna aftur í Sóltúni og það er mjög gaman.  Gaman að hitta allt fólkið aftur og svona J

Litlu sætu seiðin mín dafna vel.  En fyrir þá sem ekki vita þá eru komin alveg fullt af seiðum.  Þau voru nú örugglega svona 200 upphaflega en ætli þau séu ekki orðin svona 80 núna.  Þau eru búin að stækka svon mikið og maður sér alveg uggana og munninn og svona...gússígússí :P Svo þeir sem vilja fiska eftir nokkra mánuði láta mig vita ;)

Næstu helgi er ég að fara til Viðeyjar á Landnemamótið...verður ógisla gaman :D Eeeeelska að sofa í tjaldi ! En ég ætla samt að muna eftir svefnpokanum mínum í þetta skiptið ! (gleymdi honum óvart síðast þegar ég fór í tjaldútilegu og það var soooldið kalt ! :P)

Litli frændi Leifsson er alltaf jafn mikið krútt, hann er búinn að stækka soldið og þarnæstu helgi verður hann skírður.  Það verður spennandi að fá að vita hvað hann á að heita J

Jæja nú held ég að þetta sé komið gott í bili, blogga næst þegar eg hef eitthvað merkilegt að segja ;)

Adios...


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 18:31:58 / Bogga

OPIÐ HÚS !!!

Á morgunn, laugardaginn 11. maí er opið hús í skólanum mínum Hússtjórnarskólanum í Reykjavík milli 13:30 og 17:00.
Það verður risa handavinnusýning á öllu sem við erum búnar að gera í vetur og það verður hægt að kaupa kaffi og með því, sultur, kleinur og fleira.
Endilega allir að kíkja, kjósa og kíkja svo í kaffi! ;o
)

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.04.2007 21:20:48 / Bogga

Páskar

Gleðilega páska alle sammen ! :)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.04.2007 13:13:25 / Bogga

Tónleikar !

Allir að koma á tónleika kl 20 í Langholtskirkju í kvöld, þeir verða rosalega flottir!!
Listaflétta - Ég bíð uns birtir yfir - l('http://midi.is/tonleikar/1/4813/');"> KAUPA MIÐA
Kór Langholtskirkju býður upp á listafléttu á föstudaginn langa kl. 20, en eins og nafnið bendir til er þá mismunandi listformum fléttað saman í eina heild.
Flutt verður fjölbreytt föstutónlist, þ.e. tónlist sem fjallar um atburði píslarsögunnar. Hver hluti efnisskrárinnar endar á verkum fjögurra tónskálda við latneska textann "Ave verum corpus". Tónskáldin eru: Edward Elgar, Trond Kverno, June Nixon og W. A. Mozart.
Aðalheiður Halldórsdóttir, dansari hjá Íslenska dansflokknum, hefur samið hreyfingar fyrir kórinn og dansar auk þess í tveimur verkum. Inn á milli tónlistaratriða munu Gunnar Stefánsson, útvarpsmaður, sem um þessar mundir les Passíusálmana í Ríkisútvarpinu og Hjörtur Pálsson bókmenntafræðingur og guðfræðinemi lesa ljóð. Í kirkjunni verður sýning á nokkrum af passíusálmalistaverkum Barböru Árnason sem lánuð eru af Listasafni Íslands. Reistur verður átta metra hár kross í kirkjunni og lýsing hönnuð með tilliti til þessa einstaka atburðar.
STJÓRNANDI: Jón Stefánsson
ORGEL: Lára Bryndís Eggertsdóttir
HÖFUNDUR HREYFINGA, DANS OG DANSARI: Aðalheiður Halldórsdóttir
LESTUR: Gunnar Stefánsson, Hjörtur Pálsson
MYNDLIST: Listasafn Íslands

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 20:31:42 / Bogga

Ein ég sit og sauma...

Mmm....hvað haldiði að ég  hafi fengið í dag? Bragðaref :D  Við stelpurnar í húsó ætluðum að fara í vesturbæjarísbúðina í pásunni okkar.  Vorum ekki búnar að tala um annað og orðnar rosa spenntar.  Við hlupum út úr bílnum öskrandi á ís, nei nei, þá var búðin bara LOKUÐ !!! Og hún opnaði ekki fyrr en eitt.  Kallinn var þarna inni og vildi ekki opna fyrir okkur þó að við værum alveg 7 stelpur eða eitthvað og ég hélt að hann væri bara að grínast :( Við fórum roooosa leiðar í skólann aftur og vorum alveg ómögulegar í tímunum á eftir....rosa svangar (aðallega í ís).  Svo við ákváðum að fara bara í kaffinu í staðinn fyrir að fá okkur kökur, og þá var opið...namm namm :)

Við vorum í svo miklu vorstuði í dag og fórum meira að segja í snú snú í pásunni okkar :D Það var mjög skemmtilegt og ég held að ég hafi ekki farið í snú snú í nokkur ár!

Ég ákvað í gær loksins að ég ætla að sauma skírnarkjól.  Nei ég er ekki að fara að skíra neinn, þetta er bara svo gott tækifæri til þess að læra svona.  Mig langaði ekki að gera kjólinn vegna þess að mamma saumaði kjól á okkur þegar við vorum skírð sem er saumað í nöfnin okkar og Hrafn Ingi notaði hann líka og mig langar að nota hann í framtíðinni, nei nei, ekkert á næstunni sko, ég sé alveg svipinn á ykkur sumum ! En svo bara gat ég ekki hætt að hugsa um hann og ákvað loksins í gær að gera hann bara.  Hann er alveg ótrúlega fallegur, allur útsaumaður með hvítum og silfurþráðum.   Núhh, svo ávkað ég í dag að fyrst að ég er yfir höfuð að gera þetta þá get ég alveg eins gert líka húfu, smekk, og skó í stíl :P  Þetta er engin smá vinna og ekki séns að ég eigi eftir að klára þetta áður en skólinn klárast, en það er allt í lagi.  Ég er líka að gera rosa fallegan brauðdúk með bláum blómum sem eru saumuð með portúgölskum saum.  Svo má ekki gleyma harðangursdúknum mínum, hann gengur bara vel þó að ég eigi mikið eftir ;)

Jæja, fyrir þá sem hafa EKKI áhuga á handavinnu ætla ég að reyna að tala um eitthvað annað ;) Hmm..látum okkur sjá, hvað annað gerist í mínu lífi þessa dagana.....uuu....EKKERT! ;)   

Við fórum um daginn með skólanum að sjá Pabbann.  Borðuðum fyrst svaka fínt í Iðnó og sáum svo sýninguna.  Vá hvað hún var ótrúlega fyndin ! Algjör snilld, og örugglega ennþá fyndnari ef að maður á börn;) Maður hló alveg stanslaust, og mér var án gríns orðið illt í brosvöðvunum ! Mæli eindregið með þessari sýningu ;)

Í gærkvöldi hitti ég Maju og Dísu á kaffihúsi.   Vá hvað það var gaman að hitta þær loksins ! Við hittumst alltof sjaldan því við erum allar svo uppteknar í skólunum okkar :/ Ætlum samt að reyna að gera eitthvað í þessu, gengur ekki að hittast á margra mánaða fresti ! Ok kannski aðeins að ýkja, en samt;)

Á mánudaginn fór ég á kóræfingu og það var svo fyndið hvað allir voru glottandi.  Það sást alveg greinilega hverjir höfðu verið í Munaðarnesi um helgina og hverjir ekki, því þeir sem voru þar voru allir alveg skælbrosandi! :D Þetta var líka svo ótrúlega skemmtileg helgi og maður er orðinn svo spenntur að fara út núna með þessu liði.  Fyrir þá sem ekki vita þá er kórinn að fara til Slóvakíu og Austurríkis í vor í vikuferð :)

Jæja, er þetta ekki komið gott ? Ætla að fara með stelpunum í ísbúðina í annað skiptið í dag ! :O ætla nú samt ekki að fá mér ís, barar sýna smá lit því þær verða svo fúlar ef ég kemst ekki :S Stórhættulegar sko ;)

¡Adios !


» 8 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 01:04:47 / Bogga

Finallyyyy !!!!!!

Jæja, nú gengur þetta ekki lengur ! Ég er hér formlega hætt þessu leiðindarbloggleysi ;)  Nú hefur svoo margt gerst síðan ég skrifaði síðast að ég veit bara ekki hvar ég á að byrja:S

 

  Ég er búin að vera í Hússtjórnarskólanum í Rvk síðan í janúar og það er alveg ótrúlega gaman ! Maður mætir í skólann á morgnanna, saumar, prjónar, þrífur, eldar eða vefar, og þetta er allt svo ótrúlega skemmtilegt.  Svo bara get ég ekki beðið eftir að komast heim og sauma/prjóna meira.  Er mas búin að gefa m&p og Robba sýnishorn af eldamennskunni minni, ekki slæmt það !  ;)  Í skólanum eru 18 stelpur, skipt í 2 hópa, einn eldhúshóp og einn handavinnuhóp.  Ég var fyrst í eldhúshóp en núna er búið að skipta svo að ég er komin í handavinnuhópinn núna.  Við erum búnar að gera fullt af hlutum td lopasokka, ungbarnahúfur, lopapeysu, tátiljur, teppi, rósaband, 2xungbarnateppi, stelpupeysu, púða með gamla krossaumnum ofl.  Núna er ég að sauma harðangurs og klausturs dúk.  Það gengur bara mjg vel en það er samt engin smá vinna :P  Stelpurnar í skólanum eru allar mjög skemmtilegar og við í mínum hóp erum mas búnar að stofna saumaklúbb, skoh alvöru saumaklúbb ! ;) Ég er búin að setja soldið af myndum á http://public.fotki.com/sigurborgskuladotti/hs-vor-2007/.

Ég byrjaði líka aftur í Kór Langholtskirkju í janúar og það er mjög gaman.  Halldóra, Arnbjörg og Víkingur eru líka, ekkert nema stuð og við erum að fara til Austurríkis í vor.  Um helgina voru æfingarbúðir í Munaðarnesi.  Það var æft og æft á föstudagskvöldinu og á laugardeginum en svo á laugardagskvöldinu var ársháíð.  Hún var ótrúlega skemmtileg og ég held að flestir hafi skemmt sér konunglega :D Við dönsuðum og dönsuðum og fórum svo í eftirpartí í einum bústaðnum.  Það eru komnar nokkrar myndir á  http://public.fotki.com/sigurborgskuladotti/rsht-kl-2007/ :)

Ég er bara búin að gera voða fátt annað en þetta svona í grófum dráttum síðan í janúar, en ég er nú örugglega að gleyma einhverju svo að það kemur þá bara í næstu færslum (sem er sko ekki langt í því að ég er svo brjálæðislega góður bloggari ! ;))

Over n‘ out...

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 18:34:17 / Bogga

Afmæli !

 Til hamingju með 1 árs afmælið elsku Hrafn Ingi litli sæti frændi ! :D

<img src="http://i110.photobucket.com/albums/n107/MANDYBURN1487/birthdaycake.jpg"/><br/>


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.12.2006 22:14:16 / Bogga

Gleðileg jól !

Gleðileg jól og farsælt komandi ár ! Feliz Navidad ! :)

<img src="http://www.elpelao.com/fondos/papanoel/fondos_g7.jpg"/><br/>


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 15:52:06 / Bogga

Skyld'það vera jólahjól...

Ahhh...þá erum við bara komin heim ! Erum reyndar búin að vera heima í viku, en maður þarf nú aðeins að slaka á áður en maður fer að blogga aftur ;) Nú er það bara jóla jóla.  Ótrúlega skrítið að koma beint frá Spáni og það eru bara næstum því komin jól hérna á Íslandi ! Það voru nú komin alveg fullt af jólaljósum á Spáni en manni fannst það einhvern veginn ekkert svo jólalegt því það vantaði kuldann.  Þeir sem vilja vita eitthvað um ferðina okkar geta td kíkt á síðuna okkar Ásu : www.blog.central.is/howareyoudoing .  Ferðin var alveg ótrúúúlega skemmtileg og ég er sko alveg til í að endurtaka þetta, lýsi hér með eftir fólki sem vill styrkja mig ;)

Rosalega er skrítið að vera ekki í prófum ! Það eru svo margir sem maður þekkir í prófum og maður vorkennir þeim svo :( En þetta er rosalega notalegt, að geta loksins notið þess alveg að undirbúa jólin, vera með í að skreyta allt og baka :)  Ég er búin að baka eina sort og mamma er búin að gera 2, bara 4 eftir :D  Svo er ég búin að setja upp ss eina jólaséríu, mamma og pabbi voru búin að vera svo ótrúlega dugleg að gera fínt og skreyta áður en við kæmum heim.  Voru mas búin að mála gluggann minn og gera ótrúlega fínt í herberginu mínu !

Á sunnudaginn var svo laufabrauð heima hjá okkur.  Næstum öll stórfjölskyldan mætt á svæðið og svo var skorið og skorið.  Ég skar mas út kirkju eins og er á laufabrauðsservéttunum, mjög stolt af því ;) 

Í gærkvöldi passaði ég svo Hrafn Inga krúsilíus.  Hann var eins og engill eins og venjulega, aldrei neitt vesen á honum :) Hann er orðinn svo stór, og aðallega þroskaður.  Getur alveg labbað með og allt :D  Það var svo ótrúlega gott að hitta hann aftur og ég er alveg sannfærð um að hann muni eftir mér ;)

Jæja maður verður að fara að gera eitthvað !

over and out...


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 00:10:58 / Bogga

Dúddírúddídú,,,

Ég efast stórlega um ad einhver kíki á tessa sídu enntá, en allavega tá eru bara 5 dagar tangad til ég kem heim og tá verdur sko bloggad eins og kreisí ! 8)  En ég sá tetta á bloggsídunni hennar Halldóru og tetta er rosa skemmtilegt, allir ad svara :)

1. Miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndirðu bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndirðu þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefurðu heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefurðu talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
23. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
24. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
25. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.10.2006 09:52:45 / Bogga

Komnar til Sevilla :)

Jaeja, nú erum vid loksins komnar til Sevilla :D Tad er allt hott ad frétta og rosa gamna hjá okkur.  Vid erum komnar med nýja sídu sem vid aetlum ad skrifa á medan vid erum úti :) Sídan okkar er www.blog.central.is/howareyoudoing, verid nu dugleg ad kíkja og off kors kommenta ;)  vid lofum ad vera duglegar ad skrifa :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 19:47:01 / Bogga

Pælingar dagsin í dag :o)

   Það er eitt sem fer ótrúlega í taugarnar á mér.  Í 7. seríu í Friends, þegar Monika er að kaupa sér brúðarkjólinn þá mátar hún fyrst kjólinn í einhverri svaka fínni búð og fer svo á einhverja kjólaútsölu og kaupir kjólinn þar.  Þegar hún mátar kjólinn í fínu búðinni er hann svona rosa flottur með svona hálsmáli sem er eins og það sé bundið fyrir aftan háls (æ þið skiljið er það ekki ? :lol: ) en þegar hún er að rífast við aðra konu um kjólinn á útsölunni þá er hún með einhvern ALLT annan kjól sem er með ermum og bara allt öðruvísi, en þegar hún er svo komin heim með kjólinn og mátar hann þar, þá er þetta aftur orðinn flotti kjóllinn :|  Þetta fer svo í taugarnar á mér því þetta er svooo áberandi ! Hefur enginn annar tekið eftir þessu ?


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 20:19:05 / Bogga

Forgetfull Lucy...

Hola mi amigos !

Nú eru bara örfáir dagar þangað til að við Ása höldum á vit ævintýranna til Spánar, ánar tiltekið Sevilla ! :haha: Maður er bara að farast úr spenningi, sérstaklega þegar allir sem við þekkjum sem eru að fara til spáar eru farnir eins og Gunna og Inga, og svo Gaddi, Arnar og Helgi, en þeir eru nýfarnir til Barcelona.

Ég vann síðasta vinnudaginn minn á sunnudaginn. Reyndar er frekar líklegt að það verði hringt ef einhver er veikur eða eitthvað svoleiðis. Ég vona það allavega eiginlega vegna þess að maður á pottþétt eftir að sakna sumra íbúa þarna :$

Um helgina fór ég í laaaaaannngþráða útilegu ! :D Reyndar var draumaútilegan min í tjaldi en ég fékk Robba ekki til þess. En við fórum í Þrym og gistum þar eina nótt. Það voru ég, Robbi, Áki, Silja og Daníel Jr. Danni kom reyndar aðeins í nokkra klukkutíma og hélt uppi "góðri" trúnóstemmningu fram á nótt en fór svo heim vegna þess að blablabla. Við hin skemmtum okkur vel og sofnuðum undir morgunn (þegar við loksins gátum sofnað fyrir hrotunum í Daníel Jr. (það er ekki eðlilegt hvað barnið hrýtur hátt !!!) , nei honum tókst nú reyndar ekki að halda fyrir okkur vöku ;) ) Svo á laugardeginum lögðum við af stað heim klukkan svona hálf tvö og ákváðum að koma við í kaffi í Þorlákshöfn hjá mömmu hans Robba. Á leiðinni þangað var bara bíll stopp á miðjum vegi, á versta stað eða á blindhæð. Við keyrðum bara framhjá, en vorum samt frekar pirruð því við héldum að fólkið væri bara í berjamó eða eitthvað. Svo sáum við nú soldið eftir að hafa bara keyrt framhjá, ef það hefði nú eitthvað verið að hjá þeim, sprungið dekk eða eitthvað, svo að við snerum við. Þá voru þetta ótrúlega krúttleg gömul hjón og það var sprungið hjá þeim greyjunum !:( Robbi og Áki voru um leið komnir ofan í skottið og komnir með tjakk í annari og varadekk í hinni. Þeir vippuðu ónýta dekkinu af og skelltu hinu á á meðan við Silja og Daníel héldum gamla fólkinu félagsskap :) Þau greyin ætluðu að fara að borga okkur fyrir, vissu ekkert hvernig þau áttu að launa okkur þetta, en okkur fannst bara ótrúlega gaman að geta hjálpað :) Svo fórum við til Þorlákshafnar og auðvitað biðu okkar heitar vöfflur með rjóma og sultu...mmmm:P Svo enduðum við á því að grilla ljúfenga hamborgara heima hjá okkur :)

Mamma og pabbi komu heim í gærkvöldi frá Rúmeníu. Ég sótti þau á meðan Robbi eldaði svaka flottan mat. Það dugar ekkert annað en þriggja rétta ;) Í forrétt var spínatsúpa a la Róbert (hljómar ekkert rosalega vel en hún var mjög góð) aðalrétturinn var fylltar kjúklingabringur með ólívum, sólþ. tómötum og pestó ofl, og svo í eftirrétt var ostakaka a la Sigurborg :)

Jæja, ég er búin að setja inn TVÖ ný albúm ( já ekki eitt heldur tvö) en það eru útskriftarmyndirnar og myndir úr túrbóafmælinu hjá Söru, Lilju, Örnu og Grétu, endilega að skoða það ;)

þangað til næst.....



» 3 hafa sagt sína skoðun

14.09.2006 00:26:26 / Bogga

I´m back

Jæja, ég lét loksins undan þrýstingnum ;)

Til hamingju með afmælið elsku Eva !!! Bara orðin 25 ára, ég held að .að kalli á köku úr bókinni ;)

 Úff hvað síðasta nótt var furðuleg ! Ég svaf bara í 2 tíma. Fyrst vakti ég til að horfa á Rockstar, það byrjaði klukkan 1, og var búið klukkan 2, en svo varð ég auðvitað að kjósa og kjósa :D Svo að ég fór ekki að sofa fyrr en klukkan tæplega 3. Svo vaknaði ég aftur klukkan hálffimm til þess að keyra mömmu og pabba út á flugvöll því þau voru að fara til Rúmeníu. En svo fékk ég nú að fara að sofa aftur þegar ég kom heim klukkan 7 um morguninn ;)

 Þetta sumar er búið að vera ALLT of fljótt að líða ! Mér finnst bara vera ennþá sumar vegna þess að ég er ennþá að vinna. Þetta er í fyrsta skipti síðan ég var 5 ára sem ég fer ekki í skóla um haustið. Það vita það örugglega ekki allir, en ég er að fara í spænskuskóla á Spáni með Ásu 30. september. Við ætlum að vera í skólanum í 2 mánuði og svo ætlum við kannski að fara eitthvert og skoða okkur um í 2 vikur og Robbi líka, því hann verður líklega að klifra á Spáni á svipuðum tíma, GEGGJÓ !!! :D

 Ég er búin að fá að passa Hrafn Inga litla krúsilíus tvisvar. Einu sinni bara í einn og hálfan tíma, en svo í seinna skiptið alveg frá 12-6, og auðvitað var hann algjör engill allan tímann! Við fórum í göngutúr og alles, og hann hjalaði bara allan tímann :D

Jæja, ég ætla að halda áfram að horfa á rockstar, GO MAGNIIII !!!8)8)8)


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.06.2006 21:25:51 / Bogga

Italy

Ég er farin til Ítalíu baby !!! :haha: Seeya eftir tvær vikur !;)

» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Klukkan
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28
FyrriNæsti