Jæja
pípól ! Hvað syngur ? Er þetta ekki bara komið gott af bloggpásu
í bili ?
Það sem er helst að frétta af mér
er að um daginn fór ég með Kór Langholtskirkju til Vínar í nokkra
daga. Það var alveg ótrúlega gaman
Við vorum
fyrst í Vín og fórum svo til Sonntagberg sem er hóll/fjall með
einni kirkju og hótel. Við sungum eina tónleika
í þeirri kirkju, eina messu, eina tónleika í einhverjum öðrum sal
og svo eina tónleika í Vín. Við fórum sem sagt
aftur til Vínar síðustu 2 dagana. Hann Anton
Steingruber, kórstjórinn sem tók á móti okkur var búinn að
skipuleggja liggur við hverja einustu mínútu af ferðinni fyrir
okkur svo það var alveg nóg að gera. Við
skoðuðum alveg nóg af kirkjum, klaustrum og
söfnum. Mas einu sinni fórum við klukkan 9 eða
10 um morgunn á eitthvað safn og þar tók á móti okkur
Borgarstjórinn og ljósmyndarar og við fengum kampavín, hvítvín og
rauðvín....klukkan 10 um morguninn !!!
Við auðvitað kunnum nú
ekki við að segja nei takk, en höfðum heldur ALLS ekki lyst á
áfengi, svo við helltum því svo að lítið bæri á
Maður náði nú ekki að skoða mikið af Vín en
svona smá. Svo fórum við nokkur í Vínaróperuna,
á Don Carlos eftir Verdi. Það var alveg ótrúlega
skemmtilegt að koma þangað, og óperan var mjög flott, soldið löng
reyndar, ekki nema 4 og hálfur tími
Við vorum
mas að spá í að fara á Othello líka seinna
kvöldið. Það hefði verið mjög fyndið, að vera í
2 daga í Vín og fara á 2 óperur
Eitt sem ég á
ekki eftir að borða næstu árin er Vínarsnitsel...vá við borðuðum
það örugglega á hverjum degi !
Hótelið okkar sem við gistum á á
Sonntagberg var æðislegt ! Það var eins og gamalt klaustur, stór
dökk húsgögn og útsýnið var geggjað ! Manni leið eins og Heidi
Við flugum til London og svo frá London og
heim. Við náðum að vera heilan dag í
London. Við nenntum nú samt ekki að skoða neitt
mikið, sigldum niður Thames, löbbuðum framhjá Tower bridge og Big
Ben, og svo fórum við Andri bara á Oxford street, hann verslaði smá
og svo sátum við heillengi bara að horfa á fólkið
J
Svo flugum við heim, alveg ótrúlega þreytt
Þetta var nú í einu orði sagt alveg æðislega ferð og auðvitað
æðislegir ferðafélagar 
Ég
er byrjuð að vinna aftur í Sóltúni og það er mjög
gaman. Gaman að hitta allt fólkið aftur og
svona J
Litlu sætu seiðin mín dafna vel.
En fyrir þá sem ekki vita þá eru komin alveg fullt af
seiðum. Þau voru nú örugglega svona 200
upphaflega en ætli þau séu ekki orðin svona 80
núna. Þau eru búin að stækka svon mikið og
maður sér alveg uggana og munninn og svona...gússígússí
Svo þeir sem vilja fiska eftir nokkra mánuði láta mig vita

Næstu helgi er ég að fara til Viðeyjar á
Landnemamótið...verður ógisla gaman
Eeeeelska að sofa í
tjaldi ! En ég ætla samt að muna eftir svefnpokanum mínum í
þetta skiptið ! (gleymdi honum óvart síðast þegar ég fór í
tjaldútilegu og það var soooldið kalt !
)
Litli frændi Leifsson er alltaf
jafn mikið krútt, hann er búinn að stækka soldið og þarnæstu helgi
verður hann skírður. Það verður spennandi að fá
að vita hvað hann á að heita J
Jæja nú held ég að þetta sé komið gott í bili,
blogga næst þegar eg hef eitthvað merkilegt að segja

Adios...